Flug - gisting - greiðslur (https://www.corsa.is/is/dana-cup)

 https://www.corsa.is/is/dana-cup

Flogið verður með SAS til Álaborgar með viðkomu í Kaupmannahöfn.

Flug út – sunnudagur 19. júlí 2026:

  • SK 596
  • Reykjavík (KEF) – Kaupmannahöfn (CPH)
  • Kl. 10:30–15:35
  • SK 1203
  • Kaupmannahöfn (CPH) – Álaborg (AAL)
  • Kl. 18:35–19:25

Foreldrar geta ferðast sömu leið og liðið, annað hvort fyrr eða síðar sama dag. Athugið að flugvélin frá Kaupmannahöfn til Álaborgar er lítil og því er ekki víst að allir aðstandendur komist með henni.

Flug heim – sunnudagur 26. júlí 2026:

  • SK 1208
  • Álaborg (AAL) – Kaupmannahöfn (CPH)
  • Kl. 12:30–13:25
  • SK 2595
  • Kaupmannahöfn (CPH) – Reykjavík (KEF)
  • Kl. 16:05–17:25

Aðrir ferðamöguleikar fyrir foreldra:

  • Flug með Icelandair til Billund eða Kaupmannahafnar dagana í kringum mótið.
  • Hægt er að leigja bíl og keyra til Frederikshavn:
    • 480 km ef keyrt er beint
    • 373 km ef ferja er tekin til Árósar (Aarhus)

Möguleiki verður á að breyta heimferð barns á SAS-flugmiða gegn minniháttar breytingargjaldi.

  • Gisting

Börnin gista á The Reef Hotel í Frederikshavn í þriggja manna herbergjum með morgunmat.
Foreldrar sem vilja gista á sama hóteli fá 25% afslátt.
 Verð er 2.700 DKK á nótt fyrir tvo fullorðna, með morgunmat.
Einnig er fjöldi annarra gistimöguleika í boði á svæðinu í kringum mótið.
Foreldrar sem vilja nýta sér gistingu á The Reef fá sendan bókunar- og greiðsluhlekk.
 Gisting þarf að vera greidd að fullu að minnsta kosti 8 vikum fyrir mótið.

Mótið og samgöngur

Dana Cup fer fram í Hjørring, sem er um 30 mínútna lestarferð frá Frederikshavn.
Allar samgöngur innan Danmerkur eru innifaldar í verði fyrir börnin.

Comments